Stöðvunarbrotagjöldin
Stöðvunarbrotagjöldum er nú ætlað meira fyrirbyggjandi hlutverk en áður. Engin ástæða er lengur til að líta á það sem raunhæfan valkost fyrir ökumenn að brjóta reglur um bifreiðastöður og greiða síðan fyrir það sérstakt gjald, sem hefur lengi verið miklu lægra í Reykjavík en gerist í þeim löndum sem við gjarna berum okkur saman við.
Staðgreiðsluafsláttur
Þegar gjald er greitt án fyrirvara eða andmæla í heimabanka eða í bankastofnun er veittur 1100.- króna staðgreiðsluafsláttur.