Hver er réttinn?


Stöðvunarbrotagjöld eru lögð á vegna brota á tilteknum greinum umferðarlaganna sbr. 108. gr. nr. 50/1987. Brot á þessum ákvæðum umferðarlagann varða ekki sektum, eins og brot á flestum öðrum greinum laganna, heldur eru viðurlögin álagning stöðvunarbrotagjalda. Vegna þessa eðlismunar á viðurlögunum eru þessi mál ekki meðhöndluð sem opinber mál heldur fer málsmeðferð eftir reglum stjórnsýslulaganna og lögum um meðferð einkamála eftir því sem við á hverju sinni.

Sá sem telur á rétt sinn hallað við álagningu stöðvunarbrotagjalds á þess kost að leggja fram „Beiðni um endurskoðun álagningar“ (andmæli) til Bílastæðasjóðs Reykjavíkur. Endurskoðunin fer fram á þann hátt að yfirmaður stöðuvarðar/lögregluþjóns eða sérstakur fulltrúi þeirra fer yfir efnisatriði málsins og metur þær málsástæður og lagarök sem umsækjandi byggir beiðni sína á. Jafnframt er kallað eftir skýringum stöðuvarðar/lögregluþjóns varðandi þessa einstöku álagningu.

Á þessum vefsíðum eru tekin saman helstu ákvæði laga og reglna sem varða álagningu og innheimtu stöðvunarbrotagjalda (sjá einnig undir Lög og reglugerðir). Brýnt er fyrir umsækjanda að tilgreina skilmerkilega þær málsástæður svo og tilvísanir til laga og reglna sem hann byggir umsókn sína á.

Umsækjendum er bent á að þeir eiga þess kost að greiða gjaldið með fyrirvara og fá það síðan endurgreitt ef fallist er á beiðni þeirra um niðurfellingu gjaldsins. Geri þeir það ekki eiga þeir á hættu að missa réttinn til að greiða gjaldið með afslætti og fá jafnframt lögbundnar hækkanir á gjaldið, ef ekki er fallist á beiðni þeirra.

Umsækjendum er bent á að leggja fram strax í upphafi fullnægjandi gögn, sérstaklega ef beiðnin er byggð á staðhæfingu um að málsatvik hafi ekki átt sér stað með þeim hætti sem í brotalýsingu stöðuvarðar greinir. Brotalýsingin telst opinbert skjal, sbr. 71. gr. laga um meðferð einkamála og skal efni þess talið rétt þar til annað sannast. Er því mikilvægt að leggja fram yfirlýsingu vitnis eða önnur þau gögn sem ætla má að hnekki brotalýsingunni.

Niðurstaða endurskoðunar verður send til umsækjanda, á það heimilisfang sem tilgreint er í beiðninni. Vakin er athygli á 4. mgr. 108. gr. umferðarlaganna þar sem segir að ákvörðun um álagningu gjalds verði ekki borin undir æðra stjórnvald.