Stæðiskort fatlaðra


Stæðiskort fatlaðra

Það eru lögreglustjórar (sýslumenn utan Reykjavíkur) sem gefa út stæðiskort fyrir fatlaða. 

Umsækjendur þurfa að fylla út umsókn og skila inn ásamt læknisvottorði og ljósmynd (passamynd).  Viðkomandi lögreglustjóri leggur síðan mat á umsókn um stæðiskort og gefur út stæðiskortið að uppfylltum skilyrðum reglugerðar um útgáfu stæðiskorta fyirr fatlaða, nr. 369/2000. Eyðublöð er hægt að nálgast á vef lögreglunnar.

Sérmerkt bílastæði fatlaðra

Upplýsingar um sérmerkt stæði fatlaðra gefur Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, sími 411-1500.