Gjaldskyld bílastæði

Stærri mynd: Reykjavík gjaldsvæði 1-3 
Vinsamlegast athugið að á þessari mynd er sýnd gróflega skipting gjaldsvæða í borginni. Ef myndinni og merkingum á mælum ber ekki saman þá eru það merkingar á mælunum sem gilda.
Gjaldsvæðin eru 4 talsins og er misdýrt að leggja á þeim (sjá gjaldskrá)
Dýrast er gjaldsvæði 1 (rautt svæði ) en á því svæði eru m.a. Laugavegur, Bankastræti, hluti af Skólavörðustíg og Kvosin.
Næst dýrust eru gjaldsvæði 2 (blátt svæði) og gjaldsvæði 4 (appelsínugult).
Gjaldsvæði 2 eru m.a. hliðargötur frá Laugaveg og þær götur sem eru næst gjaldsvæði 1.
Gjaldsvæði 4 er notað við stofnanir og á sambærilegum svæðum þar sem þarf að stýra umferð á annan hátt en í miðborginni og þar er annar gjaldskyldutími en á hinum gjaldsvæðunum. Gjaldsvæði 4 er við Háskóla Íslands og Landspítala-Háskólasjúkrahús við Hringbraut og í Fossvogi.
Til lengri tíma er ódýrast að leggja á gjaldsvæði 3 (grænt svæði) en það eru svæði einsog Miðbakki, Túngata við Landakot, Skúlagata vestan Snorrabrautar og víða í Þingholtunum.