Svona leggjum við
Fjölbreytt og sveigjanleg þjónusta
Bílastæðasjóður Reykjavíkur rekur 7 bílahús (með um 1100 stæðum) og rúmlega 3000 stæði við um 700 stöðu- og miðamæla í miðborginni til að uppfylla hlutverk sitt í samgöngukerfi borgarinnar.
Við allar helstu götur á lituðu svæðunum á kortinu eru stöðumælar og miðamælar, en bílahúsin eru staðsett á mikilvægum stöðum sem uppfylla þau skilyrði að vera bæði í góðum tengslum við helstu umferðargötur og eru í stuttri göngufjarlægð frá þeim fyrirtækjum og stofnunum sem í sameiningu skapa miðborginni þá sérstöðu sem hún hefur.
Stuttur stans á einum stað.
Þá geta stöðu-og miðamælarnir komið sér vel, bara muna eftir lítilsháttar klinki. Tíkall dugar fyrir nokkrar mínútur, hundraðkall fyrir aðeins lengra stopp. Nú eða fimmtíukall fyrir eitthvað þar á milli. Ef miðamælar eru notaðir er líka hægt að greiða með debet eða kreditkorti. Jafnframt er hægt að borga með GSM símanum ef viðkomandi skráir sig á leggja.is.
Mörg stutt stopp
Upplagt að koma við í miðamæli á gjaldsvæði 1 í fyrsta stoppinu og kaupa tímamiða fyrir allan túrinn. Svo getur maður flakkað úr einu útistæði í annað á öllum þrem gjaldsvæðum þar til miðinn er útrunninn. Svo gildir tímamiði af gjaldsvæði 2 (blátt) á gjaldsvæðum 2 og 3 og kostar minna. Það er góður kostur ef þú getur sinnt öllum erindunum án þess að leggja á gjaldsvæði 1.
Og fyrir þá sem koma aftur og aftur- GSM!
Upplagt að gerast áskrifandi að GSM-greiðslukerfi hjáwww.leggja.is. Bara skrá sig í þjónustuna, verða sér úti um miða til að setja í framrúðuna og allar áhyggjur af klinki eru úr sögunni. Eitt símtal eða sms þegar maður leggur bílnum, annað þegar maður fer og málið er leyst. Þú borgar bara fyrir tímann sem þú notar, plús hóflegt þjónustugjald til rekstraraðila kerfisins.
Góður dagpartur í miðborginni
Við mælum með vel staðsettu bílahúsi þar sem maður borgar eftirá fyrir tímann sem maður notar. Núna eru um 7 hús að velja, allt frá Laugavegi 86-94 vestur að Vesturgötu 7. Reyndar er hægt að leggja eins lengi og maður vill við stöðumæli, en þar þarf að borga fyrirfram.
Langtímastæði-starfsfólk o.fl.
Í bílahúsunum 7 er hægt að kaupa mánaðarkort sem veita aðgang allan sólarhringinn. Kortin eru seld í Stjörnuporti fyrir öll húsin. Hægt er að fá nánari upplýsingar í Stjörnuporti í síma 411-3450, hjá Bílastæðasjóði í síma 411-1111 eða með tölvupósti á stjornuport@reykjavik.is.