Íbúakort


AUGLÝSING
um endurskoðaðar reglur um bílastæðakort íbúa í Reykjavíkur.

Borgarráð samþykkti eftirfarandi nýjar reglur um bílastæðakort íbúa með tilheyrandi yfirlitskorti yfir bílastæðasvæði á fundi sínum þann 3. júní 2010 með tilvísun til 2. mgr. 83. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. einnig reglur um notkun stöðureita í Reykjavík og gjaldtöku frá febrúar 1988:

  1. Íbúar með lögheimili á ákveðnum svæðum í Reykjavík, sbr. 2. lið, sem hafa ekki aðgang að bílastæði á lóð sinni, geta sótt um að fá keypt bílastæðakort íbúa (hér eftir nefnt íbúakort) hjá Bílastæðasjóði Reykjavíkur. Nú er umsækjandi leigjandi íbúðar og skal hann þá framvísa þinglýstum húsaleigusamningi með umsókn um íbúakort auk samþykkis eiganda íbúðar.
  2. Íbúakort veitir heimild til að leggja bifreið án endurgjalds í stöðu- eða miðamælastæði innan þess svæðis, sem íbúakortið tekur til. Íbúakortið gildir á svæðinu þar sem umsækjandi býr, en þó ekki á stæðum á gjaldsvæðum 1 og 4 (sjá nánar um gjaldsvæði á heimasíðu Bílastæðasjóðs). Íbúar á gjaldsvæðum 1 og 4 geta fengið íbúakort sem gildir á því svæði sem liggur næst þeirra lögheimili. Gildissvæði íbúakorta eru níu, nánar tilgreind á sérstöku yfirlitskorti sem fylgir þessum reglum.
    Svæði A er vestan Kvosar og afmarkast af Tjarnargötu, Vonarstræti, Suðurgötu, Túngötu, Mjóstræti, Vesturgötu, Grófinni, Geirsgötu, Ægisgötu, Túngötu, Garðastræti, Kirkjugarðsstíg, Suðurgötu og Skothúsvegi að Tjarnargötu.
    Svæði B afmarkast af Lækjargötu, Fríkirkjuvegi, Skothúsvegi, Hellusundi, Bergstaðastræti, Bjargarstíg, Freyjugötu, Njarðargötu, Frakkastíg, Laugavegi og Bankastræti að Lækjargötu.
    Svæði C afmarkast af Lækjargötu, Bankastræti, Laugavegi, Frakkastíg og Sæbraut.
    Svæði D afmarkast af Sóleyjargötu, Skothúsvegi, Hellusundi, Bergstaðastræti, Bjargarstíg, Freyjugötu og Njarðargötu að Sóleyjargötu.
    Svæði E afmarkast af Frakkastíg, Laugavegi, Snorrabraut og Sæbraut.
    Svæði F afmarkast af Frakkastíg, Laugavegi, Snorrabraut, Egilsgötu og loftlínu milli Egilsgötu og Frakkastígs.
    Svæði G afmarkast af Snorrabraut, Laugavegi, Höfðatúni og Sæbraut.
    Svæði H afmarkast af Snorrabraut, Njálsgötu, Rauðarárstíg, Stórholti, Skipholti, Nóatúni og Laugavegi.
    Svæði I afmarkast af Sóleyjargötu, Njarðargötu, loftlínu milli Njarðargötu og Egilsgötu, Egilsgötu, Þorfinnsgötu, Eggertsgötu og Barónsstíg að Sóleyjargötu.
  3. Umsækjandi þarf að vera skráður eigandi eða umráðamaður bifreiðarinnar sem sótt er um kort fyrir samkvæmt ökutækjaskrá. Skal bifreiðin vera á íslenskum skráningarnúmerum. Sé umsækjandi meðeigandi bifreiðar sem sótt er um íbúakort fyrir þurfa aðrir meðeigendur að eiga sama lögheimili og umsækjandinn. Sé bifreiðin í eigu fyrirtækis en til einkanota þarf umsækjandi að vera skráður umráðamaður hjá ökutækjaskrá. Óheimilt er að gefa út íbúakort fyrir bifreiðar sem að einhverju leyti eða öllu eru eða geta verið atvinnutæki, svo sem sendibifreiðar eða vörubifreiðar skv. ökutækjaskrá. Leigubifreiðar eru þó undanþegnar þessari reglu uppfylli þær öll önnur skilyrði reglnanna. Íbúakort eru ekki ætluð bifreiðum sem eru hvort heldur sem er lengri en 5,2 metrar eða breiðari en 1,9 metrar. Umsækjandi skal vera skuldlaus við Bílastæðasjóð.
  4. Heimilt er að gefa út eitt kort fyrir hverja íbúð. Óheimilt er að gefa út fleiri en eitt íbúakort á hverja kennitölu. Það á jafnframt við þó umsækjandi sé skráður eigandi fleiri en einnar íbúðar eða fleiri en eins ökutækis. Upplýsingar um íbúð skulu vera samhljóða skráningu hjá Fasteignaskrá Íslands.
  5. Á íbúakort er skráð bílnúmer, raðtala korthafa og gildistími. Því skal komið fyrir á innanverðri framrúðu bifreiðar bílstjóramegin svo vel sé læsilegt utanfrá. Óheimilt er að framselja íbúakort eða nota fyrir aðra bifreið en þá sem skráð er á kortið. Með óheimilu framsali er jafnframt átt við það ef bifreið með íbúakorti er lánuð einstaklingi með lögheimili utan íbúakortssvæðis um lengri tíma, t.d. meðan á dvöl handhafa kortsins vegna náms eða atvinnu erlendis stendur.
  6. Sótt er um íbúakort á heimasíðu Reykjavíkurborgar í gegnum Rafræna Reykjavík. Þar er jafnframt hægt að nálgast helstu upplýsingar um íbúakort sem og á heimasíðu Bílastæðasjóðs.
  7. Íbúakort er gefið út til 12 mánaða í senn og gildir því í eitt ár frá lokum útgáfumánaðar. Íbúakort gildir þó aldrei lengur en húsaleigusamningur segir til um ef það er gefið út til leigjanda íbúðar, sbr. 1. lið. Íbúakort kostar kr. 6.000 og skal það greitt fyrirfram. Sama gildir um endurnýjun korta. Til frádráttar getur þó komið sé um að ræða endurútgáfu vegna breytinga á bílnúmeri og skal þá árgjald kortsins lækka um kr. 500 fyrir hvern heilan mánuð sem eftir er af gildistíma eldra korts, að hámarki 8 mánuði. Breytist aðstæður korthafa, svo sem vegna flutnings, sölu bifreiðar eða af öðrum ástæðum sem valda því að skilyrði til útgáfu íbúakorts eru ekki lengur uppfyllt ber að skila kortinu til Bílastæðasjóðs Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Íbúakort eru ekki endurgreidd.
  8. Misnotkun kortsins, svo sem ef kort er flutt milli bifreiða eða svæða, eða ef korti er ekki skilað inn þegar aðstæður korthafa breytast, varðar missi kortsins án endurgreiðslu á eftirstandandi gildistíma þess auk þess sem handhafi kortsins hefur þá fyrirgert rétti sínum til að fá úthlutað íbúakorti í 2 ár.
  9. Reglur þessar taka gildi við birtingu í Stjórnartíðindum og falla þá úr gildi eldri reglur, sbr. auglýsingu nr. 1004/2008.

Borgarstjórinn í Reykjavík, 7. júní 2010.