Stöðubrotsgjald


Þetta gjald er lagt á þegar stöðvað eða lagt er undir bannmerki, stöðvað uppá gangstétt, of nærri gangbraut eða við aðrar nánar tilteknar aðstæður sbr. 108. grein umferðarlaga nr. 50/1987. Það er nú krónur 5000.- en að frádregnum staðgreiðsluafslætti er það 3900.- krónur. Sé gjald ógreitt 14 dögum eftir álagningu hækkar það í 7500.- krónur, og gjöld sem enn eru ógreidd 28 dögum eftir álagningu hækka í 10.000.- krónur.

Stöðubrotsgjald (bílastæði fatlaðra)
Gjaldið fyrir að leggja í bílastæði fatlaðra er krónur 10000.- Að frádregnum staðgreiðsluafslætti er gjaldið 8900.- en sé gjaldið ógreitt 14 dögum eftir álagningu er gjaldið 15000.- Sé það enn ógreitt eftir 28 daga hækkar það í 20000.-