Greiðsluleiðbeiningar
Þegar gjald er lagt á ökutæki er það lesið nær samstundis inn í bankakerfið og stofnast þar á viðkomandi eiganda/umráðamann og er þá tilbúið til greiðslu. Ein undantekning er á þessu en í þeim tilvikum þar sem lögreglan eða stöðuvörður handskrifar miða er gjaldið lesið inn í banka daginn eftir.
Hægt er að greiða stöðvunarbrotagjöld í öllum bönkum og sparisjóðum hér á landi. Jafnframt er hægt að greiða gjöldin í netbanka og er þá gjaldið undir liðnum "ógreiddar kröfur" í netbanka eiganda/umráðamanns. Sé annar en eigandi eða umráðamaður að greiða gjaldið þarf viðkomandi að slá seðlinum inn, en það er gert undir "Greiðslur" og svo "Greiðsluseðill". Vinsamlegast athugið að það er ekki hægt að millifæra inn á reikning Bílastæðasjóðs heldur þarf að greiða seðilinn.
Að gefnu tilefni er bent á að "Kennitala greiðanda" í netbönkum vísar til kennitölu þess sem er skráður fyrir gjaldinu, í þessu tilviku þá eigandi eða umráðamaður ökutækis, en ekki til þess sem er að greiða gjaldið.