Reglur um notkun stöðureita í Reykjavík


Borgarstjórn Reykjavíkur hefur skv. heimild í 2. mgr. 83. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og að fengnu samþykki lögreglustjórans í Reykjavík, sett eftirfarandi reglur um stöðumæla í Reykjavík:

I. kafli
Stöðumælar
1. gr.
     Borgarráð ákveður að fengnum tillögum umferðarnefndar hvar á götum og opnum svæðum skuli setja upp stöðumæla.
2. gr.
     Stöðumælar geta verið ýmist einn fyrir hvert stæði eða einn fyrir ótiltekin fjölda stæða. Skylt er að greiða fyrir afnot af stöðumælareit fyrir hvers konar vélknúin ökutæki.
3. gr.
     Tekjur af stöðumælum renna í bílastæðasjóð Reykjavíkur. Borgarráð ákveður gjald fyrir stöðu ökutækis á stöðumælareit og hvað ökutæki megi standa þar lengi samfellt og á hvaða tíma gjaldskylda er. Lögreglustjóri getur breytt ákvæðum um gjaldskyldu þegar sérstaklega stendur á.
4. gr.
     Ef mælir er þannig gerður að úr honum kemur miði með áletrun um þann tíma, er greitt var í hann eða þau tímamörk, sem greitt hefur verið til, skal ökumaður setja miðann á mælaborð við framrúðu bifreiðarinnar, þannig að áletrun á miðanum sé vel sýnileg utan frá.
5. gr.
     Hver sem leggur ökutæki þannig að eigi er unnt að nota stöðumælareit fyrir annað ökutæki, skal greiða í stöðumælinn eins og ökutækið stæði á stöðumælareitnum sjálfum.
6. gr.
     Á stöðumæli skal vera letrað greinilega, hve hátt stöðumæla-gjaldið er, til hve langs tíma staða er keypt, á hvaða tíma sé skylt að greiða í mælinn og hvernig mælirinn sé settur í gang. Ekkert ökutæki má standa á stöðumælareit lengur en þann hámarkstíma, sem letrað er á viðkomandi stöðumæli. Bannað er að setja nokkurn annan hlut í stöðumæli en þá mynt, sem mælirinn er gerður fyrir.

II. kafli
Rekstur bílastæða og gjaldtaka fyrir notkun þeirra.
7. gr.
     Gatnamálastjóri annast gerð almennra bílastæða ýmist á landi borgarsjóðs eða á landspildum, sem sérstaklega eru teknar á leigu í þeim tilgangi. Heimilt er að taka leigugjald fyrir bílastæði ýmist tímaleigugjald eða fast gjald.
8.gr.
     Gatnamálastjóri annast gerð og rekstur sérstakra bílastæða fyrir ökutæki, sem bannað er skv. 3. mgr. 19. gr. lögreglusamþykktar að leggja á götum eða almennum bílastæðum borgarinnar á tímabilinu milli kl. 22.00 til kl. 06.00, ýmist á landi borgarsjóðs eða á landspildum, sem sérstaklega eru teknar á leigu í þeim tilgangi.
     Borgarráð getur ákveðið að notendur bílastæðanna skuli greiða fasta mánaðarleigu fyrir afnot þeirra og skal þá festa límmiða með áritaðri notkunarheimild á rúðu viðkomandi ökutækis.
     Óheimilt er að nota bílastæðin án heimildar skv. framanskráðu. Séu þau notuð í heimildarleysi skal greiða aukastöðugjald fyrir notkunina.
9.gr.
     Heimilt er að semja við eigendur einkabílastæða um tímabundin afnot þeirra og útleigu til almennings.
10.gr.
     Borgarráð ákveður gjöld fyrir afnot bílastæða, er fjallað er um í þessum kafla, svo og þann tíma sólarhrings, sem notkun er undanþegin leigu. Leigugjöld renna í Bílastæðasjóð Reykjavíkur.


Borgarstjórinn í Reykjavík, febrúar 1988.