Samþykkt um Bílastæðasjóð Reykjavíkur
Reykjavík 1. mars 1988
I. kafli.
Stofnun og hlutverk sjóðsins.
1. gr.
Bílastæðasjóður Reykjavíkur er eign Reykjavíkurborgar. Hann tekur við hlutverki bílastæðasjóðs Reykjavíkurborgar og jafnframt við hlutverki stöðumælasjóðs Reykjavíkurborgar og skulu eignir þessara sjóða bókfærðar hjá bílastæðasjóði Reykjavíkur frá 1. janúar 1988.
Verkefni bílastæðasjóðs Reykjavíkur er að eiga og reka stöðumæla við götur borgarinnar og reka sérstök bílastæði. Jafnframt skal kostnaður við byggingu og rekstur bílastæðahúsa og annarra bílskýla fyrir almenning á vegum Reykjavíkurborgar bókfærður hjá sjóðnum, svo og ef svæði er leigt af einkaaðilum undir bílastæði.
Til bílastæðasjóðs skulu renna tekjur af stöðumælum og leigu stöðureita og gjöld vegna stöðvunarbrota. Enn fremur tekjur af leigu bílastæða jafnt úti sem í sérstökum bílastæðahúsum, sem leigð eru til lengri eða skemmri tíma. Þá fær sjóðurinn tekjur af greiddum bílastæðagjöldum, þegar húsbyggjendur greiða bílastæðagjöld skv. sérstakri samþykkt þar um. Ennfremur getur verið um að ræða framlög úr borgarsjóði eða lántökur með ábyrgð borgarsjóðs eða tryggðar veði í mannvirkjum, sem bókfærð eru hjá bílastæðasjóði.
Borgarverkfræðingur fer með málefni bílastæðasjóðs eftir nánari ákvörðun borgarráðs.
II. kafli.
Stöðvunarbrot – skilgreining.
2. gr.
Stöðvunarbrot samkvæmt samþykkt þessari eru tvennskonar. Annars vegar brot á reglum um notkun stöðureita skv. 108. gr. f lið sbr. 2. mgr. 83. gr. umferðarlaga og er gjaldtaka vegna þess hér á eftir nefnt aukastöðugjald. Hins vegar brot á reglum 108. gr. umferðarlaga lið a – d og er hér á eftir nefnt stöðubrot og stöðubrotsgjald.
III. kafli.
Stöðumælar
3. gr.
Borgarráð ákveður að fengnum tillögum umferðarnefndar hvar á götum og opnum svæðum skuli setja upp stöðumæla.
4. gr.
Stöðumælar geta verið ýmist einn fyrir hvert stæði eða einn fyrir ótiltekinn fjölda stæða. Skylt er að greiða fyrir afnot af stöðumælareit fyrir hvers konar vélknúin ökutæki.
5. gr.
Tekjur af stöðumælum renna í bílastæðasjóð. Borgarráð ákveður gjald fyrir stöðu ökutækis á stöðumælareit og hvað ökutæki megi standa þar lengi samfellt og á hvaða tíma gjaldskylda er. Lögreglustjóri getur breytt ákvæðum um gjaldskyldu þegar sérstaklega stendur á.
6. gr.
Ef mælir er þannig gerður að úr honum kemur miði með áletrun um þann tíma, er greitt var í hann eða þau tímamörk, sem greitt hefur verið til, skal ökumaður setja miðann á mælaborð við framrúðu bifreiðarinnar, þannig að áletrun á miðanum sé vel sýnileg utan frá.
7. gr.
Hver, sem leggur ökutæki þannig, að eigi er unnt að nota stöðumælareit fyrir annað ökutæki, skal greiða í stöðumælinn eins og ökutækið stæði á stöðumælareitnum sjálfum.
8. gr.
Á stöðumæli skal vera letrað greinilega, hve hátt stöðumælagjaldið er, til hve langs tíma staða er keypt, á hvaða tímum sé skylt að greiða í mælinn og hvernig mælirinn sé settur í gang.
Ekkert ökutæki má standa á stöðumælareit lengur en þann hámarkstíma, sem letraður er á viðkomandi stöðumæli.
Bannað er að setja nokkurn annan hlut í stöðumæli en þá mynt, sem mælirinn er gerður fyrir.
IV. kafli.
Eftirlit með stöðubrotum – aukastöðugjald.
9. gr.
Sérstakir stöðuverðir Reykjavíkurborgar sjá um eftirlit með stöðum bíla bæði á bílastæðum við stöðumæla og annarsstaðar. Þeir skulu líta eftir því að notendur stöðumæla hafi greitt tilskilin stöðumælagjöld og sömuleiðis þeir sem leggja bílum sínum á bílastæðum þar sem gjaldskylda er. Jafnframt skulu þeir líta eftir því, að bílum og öðrum ökutækjum sé ekki lagt ólöglega samanber 108. grein umferðarlaga nr. 50 frá 1987.
Stöðuvörðum er heimilt að fenginni heimild dómsmálaráðherra að leggja gjaldmiða á bíla til innheimtu gjalda vegna stöðubrota og misnotkunar á stöðumælum samanber 108. grein umferðarlaga nr. 50 frá 1987.
Gjöld þessi eru hér nefnd aukastöðugjöld ef um er að ræða vanrækslu á greiðslu fyrir gjaldskylt stæði eða aðra misnotkun á gjaldskyldu stæði en stöðubrotsgjald ef um er að ræða brot á reglum umferðarlaga eða lögreglusamþykktar um stöðu eða lagningu bifreiðar.
Á þeim tímum sem stöðuverðir starfa ekki sér lögreglustjórinn í Reykjavík um eftirlitið. Lögreglunni er heimilt að leggja gjaldmiða á bíla til innheimtu aukastöðugjalds eða stöðubrotsgjalds, sem rennur í bílastæðasjóð Reykjavíkur, auk þess sem hún getur beitt sektarákvæðum, samanber 101. grein laga nr. 50 frá 1987.
Aukastöðugjald og stöðubrotsgjald renna til bílastæðasjóðs Reykjavíkur.
10. gr.
Þegar stöðuvörður/lögregluþjónn verður þess var, að ökutæki stendur ólöglega samanber 108. gr. laga nr. 50 frá 1987, skal hann afhenda ökumanni þess eða festa við það tilkynningu um brotið. Á tilkynningunni skal tekið fram um tíma og stað stöðubrotsins og greint frá því að ökumanni sé boðið að ljúka málinu með greiðslu stöðubrotsgjaldsins í bílastæðasjóð Reykjavíkur, hvar og hvernig greiðslu megi inna af hendi svo og fjárhæð gjaldsins og hvernig með verði farið ef greiðsla dregst. Á sama hátt skal stöðuvörður/lögregluþjónn tilkynna um aukastöðugjald, hvar og hvernig megi inna greiðslu af hendi og hvernig með verði farið ef greiðsla dregst.
11. gr.
Borgarráð ákveður fjárhæð aukastöðugjalds og stöðubrotsgjalds.
Gjöld þessi skal greiða innan 14 daga frá álagningu. Tilkynning um gjald er í formi gíróseðils. Sé gjald samkvæmt 1. málsgrein ekki greitt innan 14 daga hækkar það gjald um 50%.
Kröfubréf skulu send til þeirra sem ekki greiða innan greinds frests.
12. gr.
Verði gjöld samkvæmt 1. málsgrein 10. greinar ekki greidd innan 14 daga er heimilt að beita ákvæðum 109. greinar umferðarlaga nr. 50 frá 1987 við innheimtu þeirra.
V. kafli.
Rekstur bílastæða og gjaldtaka fyrir notkun þeirra.
13. gr.
Gatnamálastjóri annast gerð almennra bílastæða ýmist á landi borgarsjóðs eða á landspildum, sem sérstaklega eru teknar á leigu í þeim tilgangi.
Heimilt er að taka leigugjald fyrir bílastæði ýmist tímaleigugjald eða fast gjald.
14. gr.
Gatnamálastjóri annast gerð og rekstur sérstakra bílastæða fyrir ökutæki, sem bannað er samkvæmt 3. grein málsgreinar 19. greinar lögreglusamþykktar að leggja á götum eða almennum bílastæðum borgarinnar á tímabilinu milli kl. 22:00 til kl. 06:00 ýmist á landi borgarsjóðs eða á landspildum, sem sérstaklega eru teknar á leigu í þeim tilgangi.
Borgarráð getur ákveðið að notendur bílastæðanna skuli greiða fasta mánaðarleigu fyrir afnot þeirra og skal þá festa límmiða með áritaðri notkunarheimild á rúðu viðkomandi ökutækis.
Óheimilt er að nota bílastæðin án heimildar samkvæmt framanskráðu. Séu þau notuð í heimildarleysi skal greiða aukastöðugjald fyrir notkunina.
15. gr.
Heimilt er að semja við eigendur einkabílastæða um tímabundin afnot þeirra og útleigu til almennings.
16. gr.
Borgarráð ákveður gjöld fyrir afnot bílastæða, er fjallað er um í þessum kafla svo og þann tíma sólarhrings, sem notkun er undanþegin leigu. Leigugjöld renna í bílastæðasjóð Reykjavíkur.
VI. kafli.
Bygging og rekstur bílastæðahúsa og bílskýla.
17. gr.
Bílastæðagjöld sem greiða skal til Reykjavíkurborgar, þegar eigandi fasteignar fullnægir ekki kröfum byggingarreglugerðar um bílastæði á lóði sinni skulu renna í bílastæðasjóð Reykja´vikur.
Fjárhæð bílastæðagjalds fer eftir samþykkt borgarstjórnar á hverjum tíma, samanber nú samþykkt borgastjórnar 15. janúar 1987 samanber einnig samþykkt borgarráðs frá 10. mars 1987. Bílastæðagjöldum skal varið til þess að kosta gerð og rekstur bílastæða, bílastæðahúsa og bílskýla.
18. gr.
Frá og með 1. janúar 1988 skal bókfæra rekstrargjöld og rekstrartekjur bílastæðahússins að Kolaporti við Kalkofnsveg og bílastæðis á tollstjórahúsi við Tryggvagötu hjá bílastæðasjóði. Jafnframt skal veita fé úr sjóðnum samkvæmt nánari ákvörðun borgarráðs til gerðar og rekstrar annarra bílastæða, bílastæðahúsa og bílskýla sem meðal annars þeir hafa aðgang að sem greitt hafa bílastæðagjöld samkvæmt 18. gr.
19. gr.
Heimilit er að selja hlutdeildarbréf í bílastæðahúsum sem byggð eru af Reykjavíkurborg fyrir reikning bílastæðasjóðs. Slíkt hlutdeildarbréf veitir rétt á bílastæði samkvæmt nánari skilmálum í bílastæðahúsinu og er það framseljanlegt. Rétthafi bílastæðis í bílastæðahúsi á vegum bílastæðasjóðs greiðir rekstrarkostnað vegna þess.
20. gr.
Notendur bílastæðahúsa og bílskýla bílastæðasjóðs skulu greiða leigu fyrir notkun þeirra samkvæmt gjaldskrá, sem borgarráð ákveður. Leigan rennur í bílastæðasjóð.
Borgarráð ákveður opnunartíma bílastæðahúsa.
21. gr.
Heimilt er að semja við eigendur bílastæðahúsa og bílskýla um rekstur þeirra á vegum bílastæðasjóðs hluta sólarhringsins.
22. gr.
Samþykkt þessi er sett með heimild í 2. mgr. 83. greinar laga nr. 50 frá 1987 að því er varðar II. og IV. kafla hennar, 2. mgr. 83. greinar og 108. greinar sömu laga. Tekur hún þegar gildi og jafnframt falla úr gildi reglur nr. 146/1985.